top of page
service-header-banner.png

Myndlistarnámskeið arra

ARRA-drawing-course.jpg

Vorönn 2027

Næstu námskeið hjá okkur:

Teikning I - fullorðinshópur 

Teikning I - 13-16 ára

Teikning I - 11-12 ára
 

Fleira á döfinni haust 2027:
 
Teikning II 

Kolateikning

Fréttir

courseupdates-posts-adults-week5.jpg

Fjör með kolum!

08.10.2026

Það var svo gaman hjá okkur í gær í Teikningu I, þegar við fórum að vinna með kol! Það er alltaf svoldið subbulegt en svo flott að sjá alla prófa sig áfram með kolunum og gera frábærar skyggðar teikningar! 

courseupdates-posts-teenage-week4.jpg

Lífræn form með 13-16 ára

04.10.2026

Við áttum góða stund með unglingahópnum okkar í Teikningu seinasta fimmtudag. Við vorum að teikna lífræn form, eins og ávexti og lauf, læra hvernig er hægt að einfalda þessi flóknu form og hvernig við getum sýnt fram á form og þrívídd með formlínum og teikningu. Þau eru svo ótrúlega klár! 

courseupdates-posts-teenage-week2.jpg

Þrívíð form með 13-16 ára

17.09.2026

Þetta er aðeins tími 2 og unglingarnir okkar eru að standa sig stórkostlega! Í þessari viku lærðum við um grunnformin í þrívídd og hvernig það er hægt að nota þau til að einfalda allt í kringum okkur og nota það sem grunn að flóknari teikningu.

courseupdates-posts-adults-week3.jpg

Lífræn form í Teikningu I

24.09.2026

Það voru gerðar frábærar myndir í fullorðinshópnum okkar í Teikningu í gær. Þessa vikuna erum við að æfa okkur að teikna lífræn form, eins og ávexti, og nota formlínur til að sýna formið og þrívíddina. Það er ótrúlegt hvað þau hafa náð miklum framförum og þetta er bara vika 3! Hlökkum mikið til næstu viku.

courseupdates-posts-teenage-week1-v2.jpg

Fyrsti tíminn hjá 13-16 ára

10.09.2026

Það var yndislegt að fá að hitta nemendurnar okkur fyrir Teikningu I 13-16 ára! Við skoðuðum meðal annars grunnformin í tímanum og hvernig það er hægt að nota þau í persónusköpun. Hópurinn er svo flottur og allir mjög klárir teiknarar nú þegar! Við hlökkum til að fá þau aftur í næstu viku! 

1st-class-adults.jpg

Fyrsti tíminn hjá Teikningu I

9.09.2026

Fyrsti tíminn okkar með fullorðinshópinn í Teikningu I fór vel af stað á miðvikudaginn. Við erum með einstaklega framtaksaman hóp sem sýndi strax miklar framfarir bara í einum tíma! Við hlökkum til að halda áfram með þeim! 

news-article2.jpg

Fréttagrein í Dagskránni

21.08.2026

Við fengum frábæra umfjöllun um stúdíóið okkar og nýju námskeiðin á Selfossi hjá Dagskránni. 

​

Hægt er að lesa greinina hérna. 

Framboð haust 2026

ARRA býður upp á vönduð myndlistarnámskeið fyrir fullorðna og unglinga. Námskeiðin eru kennd á Selfossi.

Viltu fá fréttir af nýjustu námskeiðunum okkar? Skráðu þig hér:
bottom of page