Við höfum reynslu af myndlýsingum barnabóka fyrir skáldsögur jafnt sem kennsluefni. Við bjóðum upp á myndlýsingar fyrir bækurnar, sem getur verið allt frá heilum blaðsíðum niður í litlar myndir. Við bjóðum einnig upp á heildræna þjónustu fyrir þá sem þurfa, þar sem við gerum myndirnar fyrir bókina, bókakápuna og sjáum um umbrotið. Þá er ekkert eftir nema að senda bókina í prentun!
Við skilum bókinni frá okkur þannig að hún er tilbúin fyrir þína prentþjónustu eða útgefanda, en við sjáum ekki um prentun sjálf. Ef þú ert nú þegar með prentþjónustu eða útgefanda í huga, getum við unnið með þeim og passað upp á að allar prentupplýsingar séu 100% réttar.
Við þekkjum það á eigin skinni að verkefni eins og barnabækur eru oft dýrar og erfitt sem einstaka höfundur að standa undir kosnaði af myndskreytingum. Ef þú ert í þeirri stöðu erum við tilbúin að hjálpa þér að finna lausn á þinni bók, t.d. með ódýari myndlýsingarstíl, hjálp við að velja færri myndir, dreifa greiðslum o.s.fv. Okkur finnst alltaf gaman að fá að vinna með öðru listafólki og höfundum þannig ekki hika við að hafa samband og við getum skoðað hvernig við getum hjálpað þér með þitt draumaverkefni.
Sýnishorn











