
Um okkur
Við erum lítið tveggja manna stúdíó, með mikla reynslu út öllum áttum. Við elskum að fá að vinna með öðrum og hjálpa þeim að koma sínum verkefnum og hugmyndum út í heiminn á myndrænan máta. Hvort sem þú ert einstaklingur, lítið fyrirtæki að stíga þín fyrstu skref eða stórfyrirtæki þá bjóðum við upp á listræna og persónulega þjónustu sem leyfir þínu fyrirtæki eða verkefni að skína sem skærast.
Allt okkar efni er búið til af manneskjum, handa manneskjum. Við notum ekki genAI forrit né önnur gervigreindarforrit í okkar ferli. Við tökum ekki að okkur vinnu þar sem gervigreind er notuð.
teymið

Amy Alice Riches
Aðalhönnuður & teiknari
Amy kemur upphaflega frá Bretlandi en býr ný á Íslandi. Hún er með yfir 12 ára reynslu í grafískri hönnun og teikningu, ásamt 3 ára reynslu í tölvuleikjaiðnaðinum. Hún hefur unnið með fjölda fyrirtækja í Bretlandi og Íslandi og hefur hannað allt frá bæklingum, lógóum og fréttabréfum til myndlýsinga, tölvuleikjateiknun og UI táknmyndir.
Hún kemur sér í gang með góðum breskum tebolla og elskar að fara í göngur og mála úti í villtri íslenskri náttúru!
Hægt er að sjá olíumálverkin hennar á:

Ragnheiður Ásta Valgeirsdóttir
Verkefnastjóri, hönnuður & teiknari
Ragnheiður Ásta hefur á 10 ára tímabili starfað við fjölbreytt hönnunar- og teiknistörf, meðal annars innan kvikmynda- og þáttagerðar, tölvuleikja, teiknimynda, auglýsinga og bókaútgáfu. Hún hefur tekið að sér fjölbreytt verkefni eins og myndlýsingar á barnabókum, leikmynda- hönnun, persónusköpun fyrir tölvuleiki
og margt fleira.
Hún veit fátt betra en að sitja við varðeld út í náttúrunni með heitan kakóbolla og fuglasöng í fjarska. Hún er líka myndlistarkona og má sjá málverkin hennar hérna:

Rúby
Skrifstofustjóri
Rúby sér um að halda uppi peppinu á skrifstofunni og að allir fari út í hreint loft svona annað slagið!
