
Teikning I
13-16 ára
Teikning I fyrir 13-16 ára (8-10 bekkur).
Þetta námskeið hentar öllum ungmennum sem hafa gaman að því að teikna og vilja læra frekari undirstöðu í teikningu. Tímarnir leggja áherslu á klassíska teikningu en eru brotnir upp með skemmtilegum teiknileikjum og verkefnum sem skora á ímyndunarafl teiknarans.
Viðfangsefni námskeiðinsins verða meðal annars:
Teikning á frumformunum og náttúrulegum formum, skygging, fjarvídd, mannslíkaminn með fókus á persónusköpun og teikning dýra og furðuskepna.
Frekari spurningar á listastudio@arra.is eða í síma 691-9920.
Tímasetning
Fimmtudagar kl 16:30-18:30
10. sept - 29. okt 2026
8 vikur
Verð
45.000 kr
Staðsetning
Selið, Engjavegi 48, Selfossi.
Stendur við Selfossvöllinn.
Efniskaup
Mælt er með að koma með sinn eigin HB og 2B blýant, strokleður og reglustiku. Allur pappír og önnur áhöld eru innifalin í námskeiðisgjaldi.
Hámarksfjöldi nemenda
8
Myndlistakennararnir

Ragnheiður Ásta Valgeirsdóttir
Ragnheiður Ásta starfar sem teiknari og myndlistarkona. Hún menntaði sig í Teikningu (diplóma) við Myndlistaskólann í Reykjavík og kláraði BA gráðu við Tölvuleikjateiknun í University of Cumbria í Bretlandi. Eftir það bætti hún við sig á námskeiðum frá fleiri myndlistarakademíum. Á um 10 ára tímabili hefur hún starfað við fjölbreytt myndlistarstörf, meðal annars innan kvikmynda- og þáttagerðar, tölvuleikja, teiknimynda, auglýsinga og bókaútgáfu. Verk hennar má sjá t.d. bókunum Bláeyg (2024), Ísbjörn (2023), Galdraskólinn (2019) og teiknimyndaseríunni Ormhildur the Brave (2026).
Málverk Ragnheiðar Ástu einkennast af angurværðri dulúð, umlukin íslenskri menningu og þjóðtrú. Dálæti Ragnheiðar Ástu af þjóðmenningu, klæðnaði og náttúru kemur einnig sterkt inn í verkum hennar. Málverkin eru gerð í ýmsum miðlum, meðal annars vatnslitum, kolum, olíu eða blandaðri tækni.

Amy Alice Riches
Amy kemur upphaflega frá Bretlandi en býr nú á Íslandi.Hún kláraði BA gráðu í Fine Art og Mastersgráðu í Listasögu við University of Plymouth. Hún hóf störf innan auglýsingahönnunar og hefur starfað við það síðastliðin 15 ár. Hún hefur unnið með fjölmörgum fyrirtækjum í Bretlandi og Íslandi og hannað og teiknað allt frá bæklingum, lógóum, auglýsingum, myndlýsingum og tölvuleikjum.
Sem myndlistarkona þá vinnur hún með kol, gvass og olíumálningu og málar helst landslag. Hún hefur alltaf heillast að því hvernig landslagsmálverk geta flutt þig á allt annan stað og hún reynir ávalt að ná fram einstökum eiginleika hvers staðs fyrir sig. Hún málar mikið úti (plein air) og hefur það orðið mikilvægur hluti af prósessinum hennar og málar hún fjöldan allan af stúdíum úti í náttúrunni.












